Keiluhöllin slær sölumet!

8864 lítrar af jólabjór seldust á tveimur mánuðum!

Koma jólabjórsins ár hvert er orðinn órjúfanlegur hluti aðventunnar. Miklar vangaveltur tengjast jólabjórnum og bjóráhugamenn keppast við að bragða sem flesta og leggja mat á gæði þeirra. Upphaf þessarar hefðar á sér langa sögu en Skandinavar geta líklega státað sig mest af þessari hefð og þar fer fremstur í flokki danski bjórframleiðandinn Tuborg.
 
Ölgerðin heldur utan um skemmtilegar staðreyndir um sölu jólabjórsins ár hvert, og veitir verðlaun þeim stað sem selur mesta magnið. Þriðja árið í röð er það Keiluhöllin í Egilshöll sem hampar bikarnum en þar seldust hvorki meira né minna en 8864 lítrar af jólabjór.
 
Þessi árangur kemur ekki á óvart þar sem að árið 2019 er einmitt stærsta árið í sögu Keiluhallarinnar þegar 183.261 manns léku keilu á þeim 22 brautum sem Keiluhöllin státar af. Sportbarinn í Keiluhöllinni á stóran þátt í þessari miklu bjórsölu en hann er einn mest sótti sportbar landsins og þó víðar væri leitað. “Sportbarinn okkar er yfirleitt troðfullur flesta daga vikunna. Bæði er það enski boltinn sem trekkir að en einnig þeir fjölmörgu viðburðir sem fara fram í hverjum mánuði. Þar má nefna Dr. Football HjöbbQuiz, Megabingó Sveppa, Nei hættu nú alveg með Villa Naglbít, Hæ hæ með Helga og Hjálmari sem og fjölbreytta tónlistarviðburði. Aðventan var einstaklega viðburðarík og skemmtileg hjá okkur, og því erum við einstaklega stolt af þessum verðlaunum”, segir Andrea Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Keiluhallarinnar.