Gleðipinnar og Hreyfill snúa bökum saman!
- Hreyfill færir þér matinn frá veitingastöðum Gleðipinna
- Frítt ef pantað er fyrir 6900 kr. eða meira, annars 1500 kr. heimsendingargjald.
Hreyfill færir þér matinn
Gleðipinnar og Hreyfill hafa ákveðið að snúa bökum saman á þessum furðulegu tímum sem við lifum nú. “Gleðipinnar höfðu samband við okkur og viðruðu þessa hugmynd sem okkur fannst frábær. Leigubílstjórar, líkt og aðrir í þjóðfélaginu, hafa verið uggandi og áhyggjufullir yfir stöðunni. Þetta samstarf kemur sér afar vel fyrir okkur og líka fyrir veitingastaði Gleðipinna. Vonandi getum við lagt okkar af mörkum við að aðstoða þá sem komast ekki úr húsi”, segir Haraldur Axel Gunnarsson, framkvæmdastjóri Hreyfils.
“Leigubílstjórar upplifa minnkandi viðskipti og á sama tíma er mikil eftirspurn eftir take away. Við erum að senda heim frá völdum stöðum með Aha, en samstarfið við Hreyfil eykur enn á afköst okkar í heimsendingu”, segir Jóhannes Ásbjörnsson, talsmaður Gleðipinna.
“Fyrirkomulagið er einfalt og uppá gamla mátann. Þú hringir á þann veitingastað sem þú vilt panta hjá, við svörum og tökum við pöntun og símgreiðslu. Svo hringjum við í Hreyfil og þeir skutla matnum hratt og örugglega til þín. Þú tekur fram hvort þú viljir snertilausa heimsendingu og þá skilur leigubílstjórinn matinn eftir við dyrnar hjá þér”, bætir Jóhannes við.
Veitingastaðir Gleðipinna og símanúmer
Aktu Taktu Skúlagata: 561-0400 (opið allan sólarhringinn)
Aktu Taktu Mjódd: 557-9922
Aktu Taktu Garðarbær: 565-8050
Aktu Taktu Fellsmúla: 533-4100
Keiluhöllin: 511-5300
Shake&Pizza - 517-1819
Hamborgarafabrikkan Höfðatorgi og Kringlunni: 575-7575
American Style Skipholti og Dalshrauni: 517-1818
Eldsmiðjan Suðurlandsbraut: 562-3838
Blackbox Borgartúni og Mosó: 546-0321
Pítan Skipholti: 562-9090
Saffran Dalvegi: 578-7874