Gleðipinnar verða til
Eigendur Keiluhallarinnar, Saffran, Hamborgarafabrikkunnar og fleiri veitingastaða hafa nú sameinast undir nafni Gleðipinna. Samkeppniseftirlitið veitti samþykki þess efnis þann 4. febrúar 2020. Eigendur Gleðipinna eru þeir Jóhannes Ásbjörnsson, Guðmundur Auðunsson og Bjarni Stefán Gunnarsson ásamt feðgunum Jóhanni Þórarinssyni og Þórarni Ragnarssyni.
“Við erum afskaplega glöð með að vera komin með græna ljósið. Við höfum skýra sýn á það hvert við stefnum og nú getum við loksins hafist handa og látið hendur standa fram úr ermum”, segir Jóhannes Ásbjörnsson, betur þekktur sem Jói á Hamborgarafabrikkunni, sem er einn eigenda hins nýja félags ásamt því að stýra markaðsmálum og gegna hlutverki talsmanns.
“Við fögnum þessari niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins og við sameininguna verður til öflugt félag á veitingamarkaði sem hefur á að skipa frábæru starfsfólki. Framundan eru spennandi og krefjandi tímar sem munu fela í sér fjölmörg tækifæri sem við ætlum að nýta til enn frekari sóknar og uppbyggingar. Aukin stærð og slagkraftur mun gera okkur kleift að hlúa enn frekar að okkar viðskiptavinum og starfsfólki og það er verkefni sem við hlökkum til að takast á við”, segir Jóhann Þórarinsson, einn eigenda Gleðipinna.
Vöruþróun í samstarfi við bestu kokka landsins
Veitingastaðirnir sem tilheyra Gleðipinnum eru Hamborgarafabrikkan, Saffran, Keiluhöllin, Shake&Pizza, American Style, Blackbox, Roadhouse, Eldsmiðjan, Aktu Taktu, Pítan og Kaffivagninn. “Okkur hefur gengið vel með þá staði sem við höfum opnað, Fabrikkuna, Keiluhöllina og Shake&Pizza. Markmiðið með þessari sameiningu er að beita okkar aðferðafræði á hin vörumerkin í samstæðunni með það fyrir augum að hámarka gæði. Ég hef þá trú að ef þú setur þér skýr markmið og fylgir þeim eftir þá nærðu árangri. Lykillinn er vinna af heilindum að því að skapa virði fyrir viðskiptavininn, bera virðingu fyrir þörfum hans og finna rétta jafnvægið á milli verðs og gæða.”, segir Jóhannes.
Gæða- og vöruþróunarvinna verður rauði þráðurinn í starfi Gleðipinna næstu misserin og hafa reynslumiklir matreiðslumenn verið fengnir til að leiða þá vinnu. “Eyþór Rúnarsson hefur undanfarið unnið með okkur á Hamborgarafabrikkunni og hannað hamborgara á borð við Svöluna, Herra Hnetusmjör og Stefán Karl. Þeir Viktor Örn Andrésson og Hinrik Lárusson eru að vinna að vöruþróun fyrir American Style, Saffran og Roadhouse og koma til með að vinna með fleiri af okkar vörumerkjum. Viktor Örn og Hinrik eru ótrúlega flinkir og þeim fylgja ferskir straumar. Svo er það Karl Viggó Vigfússon, Viggó á Blackbox, sem býr að áralangri reynslu úr kokkalandsliðinu. Viggó gefur engan afslátt af gæðum eins og viðskiptavinir Blackbox vita og verður einn af okkar ráðgjöfum í ferlinu sem framundan er”, bætir Jóhannes við
Viðskiptavinir og starfsfólk munu finna muninn
Gleðpinnar hafa strax hafist handa við að innleiða breytingar. Sem dæmi hefur American Style í Skipholti fengið glænýtt útlit og Stælborgarinn hefur fengið gæðauppfærslu, kjötið sem var 90 gr. er orðið 120 gr. og hann er borinn fram í nýju hamborgarabrauði sem kemur skemmtilega á óvart. Roadhouse var endurnýjaður innanstokks sem og tveir af Saffran stöðunum. “Nú stendur yfir spennandi vöruþróun á Saffran en þar munum við kynna til sögunnar splunkunýja og spennandi rétti sem eru hannaðir af þeim Viktori og Hinriki. Svona munum við halda áfram á næstu misserum og kynna spennandi nýjungar og breytingar til sögunnar”, segir Jóhann.
Hjá Gleðipinnum starfa um 700 manns af 38 þjóðernum á 26 veitingastöðum. Mannauðsstjóri Gleðipinna er María Rún Hafliðadóttir sem kom til félagsins frá Icelandair. Gleðipinnar hafa það að markmiði að skapa gott umhverfi fyrir sitt starfsfólk. “Við erum ekki að tjalda til einnar nætur. Við viljum skapa gott umhverfi fyrir okkar starfsfólk og byggja upp fyrirtæki sem starfsfólk okkar er stolt að vinna hjá. Ein stærsta áskorunin á okkar markaði er að laða að rétta fólkið og halda því sem lengst og einmitt með því að hlúa vel að okkar fólki þá byggjum við upp eftirsóknarverðan vinnustað.”, segir María Rún.
Ný vefsíða Gleðipinna
Ný vefsíða hins sameinaða félags hefur verið opnuð, www.gleðipinnar.is og þar má fylgjast með því sem ber hæst hjá veitingastöðum Gleðipinna hverju sinni. “Hugmyndin er að opna dyrnar og leyfa viðskiptavinum okkar og starfsfólki að fylgjast með ferðalagi okkar næstu misserin og árin. Þar verður hægt að fræðast um þær breytingar sem við hyggjumst gera og nálgast ýmsar skemmtilegar upplýsingar um starfsfólkið okkar og staðina”, segir Jóhannes að lokum